Upphaf skólaársins 2012-2013

Starfsfólk Tónlistarskólans er nú á starfsdögum og vinnur ötullega að því að leggja lokahönd á undirbúning skólaársins.

Seinna í þessari viku og/eða um næstu helgi, munu kennarar skólans hafa samband við nemendur og forráðamenn og tilkynna tíma í öllum námsgreinum.

Kennsla hefst síðan mánudaginn 27. ágúst.

Vortónleikar 2012

15. maí þrið.

  • kl. 18:30 Vortónleikar nem. Þorvalds Más í Y.-Njarðv.kirkju

16. maí mið.

  • kl.17:00 Vortónleikar nem. Geirþrúðar, Berglindar,Dagnýjar M. í Y.-Njarðv.kirkju
  • kl.18:00 Vortónleikar nem. Geirþrúðar, Berglindar,Dagnýjar M. í Y.-Njarðv.kirkju

19. maí laug.

  • kl. 13:30 Vortónleikar nem. Ragnheiðar á sal TR við Þórustíg
  • kl. 15:00 Vortónleikar Strengjasveitar TR í Y.-Njarðv.kirkju

21. maí mán.

  • kl. 17:30 Vortónleikar nem. Bjargeyjar á sal TR við Þórustíg
  • kl. 19:00 Vortónleikar nem. Önnu Málfríðar á sal TR við Þórustíg
  • kl. 19:30 Vortónleikar Rytmískadeildar á sal TR við Austurgötu

22. maí þrið.

  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Helgu Aðalheiðar í Stapa
  • kl. 18:30 Vortónleikar Gítarsamspil TR í Stapa
  • kl. 19:00 Vortónleikar nem. Örvars á sal TR við Þórustíg

23. maí mið.

  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Alberts Sölva og Páls á sal TR við Austurgötu
  • kl. 20:00 Vortónleikar nem. Dagnýar J. og Jóhanns Smára á sal TR við Austurgötu

24 maí fimm.

  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Önnu Hugad. í Y.-Njarðv.kirkju
  • kl. 18:00 Vortónleikar nem. Steinars G. í Y.-Njarðv.kirkju
  • kl. 19:30 Vortónleikar nem. Aleksöndru í Y.-Njarðv.kirkju
  • kl. 19:00 Vortónleikar nem. Germans á sal TR Austurgötu
  • kl. 20:00 Vortónleikar málmbl.deildar á sal TR Austurgötu – nem. Hörpu, Eyþórs og Steinars K.

25. maí fös. Síðasti kennsludagur

  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Gunnhildar, Unnar, Sigurjóns og Sigrúnar Gróu í Y.-Njarðv.kirkju
  • kl. 18:30 Vortónleikar nem. Gunnhildar, Unnar, Sigurjóns og Sigrúnar Gróu í Y.-Njarðv.kirkju

30 maí miðv.

  • kl. 19:00 Vortónleikar Lúðrasveitar TR í Stapa

31. maí fimm.

  • kl. 18:00 Skólaslit í Stapa

Endaspretturinn og

Þá er lokasprettur skólaársins hafinn. Framundan eru ársprófin, síðustu áfangapróf þessa skólaárs og vortónleikar. Nemendur þurfa að klára undirbúning verkefnanna í samstarfi við kennara sína svo allt verði sem best úr garði gert og nemendur finni sig örugga og tilbúna fyrir próf og tónleika.

Hér koma upplýsingar um tónleika, próf o.fl.:

  • Árspróf í hljóðfæraleik og söng verða dagana 23. – 27. apríl.
  • Áfangapróf í hljóðfæraleik og söng verða í maí. Kennarar tilkynna nemendum nánar um prófdaga, staðsetningu prófa og tíma.
  • Síðasti prófhluti í Kjarna yngri nemenda fer fram dagana 10. – 16. maí.
  • Síðasti prófhluti í Kjarna eldri nemenda (hraðferð) verða dagana 14. og 15. maí.
  • Síðasti hluti prófa í Tónheyrn verður 10. maí. Próf í Hljómfræði verða 14. maí.
  • Próf í Tónlistarsögu verða 24. maí. Vortónleikar deilda verða dagana 21. – 25. maí.
  • Síðasti kennsludagur er föstudagurinn 25. maí.
  • Starfsdagar kennara verða 29. og 30. maí og 1. júní.
  • Skólaslit verða fimmtudaginn 31. maí kl.18.00 í Stapa, Hljómahöllinni.

Flottir tónleikar

Nemendur og meðleikarar  stóðu sig afar vel á tónleikum lengra kominna nemenda sem fram fóru í Stapa í gær, fimmtudaginn 22. mars. Tónleikarnir tókust í alla staði mjög vel og voru sérlega skemmtilegir.

Tónleikar lengra kominna nemenda

Hinir árlegu tónleikar lengra kominna nemenda skólans verða hladnir í Stapa, Hljómahöllinni, fimmtudaginn 22. mars kl.19.30.

Efnisskráin er sérlega fjölbreytt og spennandi. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Verðlaun á Nótunni

Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar keppti á lokatónleikum Nótunnar sem fram fóru í Eldborgarsal Hörpu s.l. sunnudag. Sveitin, sem lék stór-glæsilega,  vann til verðlauna í flokki samleiks í miðnámi. Tónlistarskólinn óskar nemendunum í þessari flottu hljómsveit og stjórnandanum innilega til hamingju.

Nótan – Svæðistónleikar í Salnum

Síðast liðinn sunnudag tók Tónlistarskóli Reykjanesbæjar þátt í svæðistónleikum „Nótunnar-uppskepuhátíðar tónlistarskóla“, í Salnum í Kópavogi. Alls voru haldnir þrennir tónleikar, þ.e. fyrir nemendur í grunnnámi, miðnámi og framhaldsnámi.

Skólinn sendi 3 atriði; Forskóla 2, alls 125 nemendur, ásamt mið-lúðrasveitinni, alls 25 nemendur, sem komu fram á grunnnáms-tónleikunum með lagið „Blokklingarnir“ eftir Michael Jón Clarke,  blásara- og slagverkssveitina Tropic Thunder, sem flutti lagið „Astrocyte“, eftir Sævar Bachmann Kjartansson nemanda í tónsmíðum við skólann og Léttsveitina, sem flutti lagið „It Had Better Be Tonight“ eftir Henry Mancini. Bæði þessi atriði komu fram á miðnámstónleikunum. Allir hóparnir stóðu sig með mikilli prýði og voru Tónlistarskólanum og bænum okkar til mikils sóma.

Á svæðistónleikunum var starfandi valnefnd, sem hafði það hlutverk að velja 7 atriði alls, af þessum þremur tónleikum, til að koma fram á Lokahátíð Nótunnar sem fram fer í Eldborgarsal Hörpu, n.k. sunnudag, þann 18. mars. Valnefndin valdi Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar sem eitt af þessum 7 tónlistaratriðum. Áhugasömum er bent á vefsíðu Nótunnar, notan.is þar sem sjá má tímasetningar tónleikanna á Lokahátíðinni o.fl. áhugavert. Tónleikarnir sem Léttsveitin mun leika á í Eldborg, hefjast kl.14.00.

Auk þessa mun eldra gítarsamspil skólans leika, ásamt eldra gítarsamspili Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar, í anddyri Hörpu kl.11.00, þ.e. áður en lokahátíð Nótunnar hefst formlega.

 

Nótan-uppskeruhátíð tónlistarskóla 2012

Næst komandi sunnudag, þann 11. mars, verða haldnir svæðistónleikar Nótunnar-uppskeruhátíðar tónlistarskóla fyrir Suðurnes, Suðurland og Kragann þ.e. höfuðborgarsvæðið umhverfis Reykjavík. Tónleikarnir verða í Salnum í Tónlistarhúsi Kópavogs. Alls verða haldnir þrennir tónleikar; á grunnnámsstigi kl.11.30, á miðnámsstigi kl.13.00 og á miðnáms- og framhaldsnámsstigi kl.14.30.

Við tökum þátt í svæðistónleikunum með þau 3 atriði sem valin voru af valnefnd skólans á tónleikunum sem haldnir voru á Degi tónlistarskólanna laugardaginn 25. febrúar s.l.

Þau atriði sem taka þátt í svæðistónleikunum á sunnudaginn eru:

  • Forskóli 2 og Lúðrasveit með lagið „Blokklingarnir“ eftir Michael Jón Clarke í útsetningu Inga Garðars Erlendssonar. Þetta atriði verður á Grunnnáms-tónleikunum kl.11.30
  • Hljómsveitin Tropic Thunder með lagið „Astrocyte“ eftir Sævar Bachmann Kjartansson. Þetta atriði verður á Miðnáms-tónleikunum kl. 13.00
  • Léttsveitin með lagið „It Had Better Be Tonight“ eftir Henry Mancini.  Þetta atriði verður sömuleiðis á Miðnáms-tónleikunum kl. 13.00 og verður lokaatriði tónleikanna.

Allir eru velkomnir á tónleikana og aðgangur er ókeypis.

Á svæðistónleikunum verður valnefnd á vegum yfirstjórnar Nótunnar sem velur alls 7 atriði af tónleikum dagsins til að taka þátt í Lokatónlekum Nótunnar sem fara fram í Eldborg í Hörpu sunnudaginn 18. mars n.k. Vonandi náum við atriði inn á þá tónleika. Það væri skemmtilegt.

Dagur tónlistarskólanna – myndir