Dagur Tónlistarskólanna 2021

Dagur tónlistarskólanna er nú haldinn hátíðlegur árlega sunnudaginn 7. febrúar sem er fæðingardagur Gylfa Þ. Gíslasonar fyrrverandi menntamálaráðherra. Litið er á hann sem „föður“ íslenska tónlistarskólakerfisins vegna framgöngu hans á 7. áratug síðustu aldar um fyrstu lög um fjárhagslegan stuðning við tónlistarskóla.

Í tilefni dagsins stendur skólinn fyrir nemendatónleikum í netheimum alla helgina. Síðustu daga hafa verið tekin upp myndskeið af ýmsum hópum á öllum aldri í skólanum og eru nemendur spenntir að sýna ykkur afraksturinn.
Gjörið svo vel!

Suzuki píanó

Lúðrasveit A

Strengjasveit B

Klarinettkvartett

Gítarsveit C

Bjöllukór TR