Stórsveit frá Sct. Mariae Skole í Álaborg í Danmörku, „Sct. Mariae Skoles Bigband“ kemur í heimsókn til okkar á sunnudaginn kemur, þann 14. október. Sveitin sem skipuð er 30 hljóðfæranemendum á aldrinum 17-20 ára, leikur við messu í Keflavíkurkirkju kl. 11 á sunnudaginn og heldur síðan tónleika með Léttsveitinni okkar kl. 16 í Stapa, Hljómahöllinni.
Á tónleikunum í Stapa munu Hljómsveitirnar leika sína efnisskrána hvor, en síðan munu þær frumflytja nýtt tónverk eftir danska tónskáldið Jesper Riis, sem hann skrifaði sérstaklega fyir þessar tvær stórsveitir með styrk frá Norræna menningarsjóðnum. Verkið er eins konar syrpa af íslenskum og dönskum þjóðlögum.
Stjórnendur stórsveitanna eru Gert Norgaard og Karen J. Sturlaugsson.
Aðgangur á tónleikana er ókeypis og öllum heimill.