Jólatónleikar

mán. 9.des.

  • kl. 17:00 Jólatónleikar nem. Helgu Aðalheiðar í Bíósal, Duus
  • kl. 18:00 Jólatónleikar nem. Þórunnar í Bíósal, Duus

þrið.10.des.

  • kl. 17:00 Jólatónleikar Strengjasveitar í Bíósal, Duus
  • kl. 18:00 Jólatónleikar nem. Rytmadeildar á sal Tónlistarsk. við Austurgötu
  • kl. 19:00 Jólatónleikar nem. Rytmadeildar á sal Tónlistarsk. við Austurgötu
  • kl. 20:00 Jólatónleikar nem. Steinars G. í Bíósal, Duus

miðv.11.des.

  • kl. 18:00 Jólatónleikar nem. Aleksöndru og Páls í Bíósal, Duus

 

fimm. 12.des.

  • kl. 17:30 Jólatónleikar nem. Bjargeyjar og Önnu Málfríðar í Bíósal, Duus
  • kl. 18:00 Jólatónleikar nem. Emils á sal Tónlistarsk.við Austurgötu
  • kl. 18:30 Jólatónleikar nem. Germans í Bíósal, Duus
  • kl. 19:00 Jólatónleikar nem. Sigrúnar Gróu á sal Tónlistarsk. við Þórustíg
  • kl. 19:30 Jólatónleikar nem. Snæbjörns í Bíósal, Duus
  • kl. 20:00 Jólatónleikar nem. Söngdeildar (Dagnýar J., Bylgju, og Jóhanns Smára) í Bíósal, Duus

fös. 13.des.

  • kl. 16:30 Jólatónleikar nem. Örvars á sal Tónlistarsk. við Þórustíg
  • kl. 17:00 Jólatónleikar nem. Ragnheiðar og Kristjáns í Bíósal, Duus
  • kl. 17:30 Jólatónleikar nem. Grétu á sal Tónlistarsk. við Þórustíg
  • kl. 18:00 Jólatónleikar nem. Þorvaldar Más og Díönu á sal Tónlistarsk. við Austurgötu
  • kl. 18:30 Jólatónleikar nem. Unnar í Bíósal, Duus

mán. 16.des.

  • kl. 15:00 Stofutónleikar hjá Lúðrasveit B á sal Tónlistarsk. Austurg.
  • kl. 17:00 Jólatónleikar nem. Geirþrúðar, Berglindar og Vilborgar í Bíósal, Duus
  • kl. 18:00 Jólatónleikar nem. Geirþrúðar, Berglindar og Vilborgar í Bíósal, Duus
  • kl. 18:30 Jólatónleikar nem. Málmblástursdeildar ( Eyþórs, Hörpu, Birkis) á sal Tónlistarsk. við við Austurgötu
  • kl. 19:00 Jólatónleikar nem. Hilmu og Baldvins í Bíósal,Duus

þrið. 17. des.

  • kl. 15:00 Stofutónleikar hjá Lúðrasveit C á sal Tónlistarsk. við Austurgötu
  • kl. 18:00 Jólatónleikar Gítarssampils í Ytri-Njarðv.kirkju

þrið. 17. des. Síðasti kennsludagur fyrir jól

miðv.18.des. – fös.20.des. Starfsdagar kennara vegna flutnings

mán. 6. jan.  Starfsdagur kennarar

þrið. 7. jan.   Kennsla hefst

 

Hausttónleikar Lúðrasveitar TR

Hausttónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir á morgun, þriðjudaginn 19. nóvember kl.17.30 í Stapa, Hljómahöllinni. Að þessu sinni eru tónleikarnir óvenju snemma dags, sem kemur til vegna landsleiksins við Króatíu.

Á tónleikunum koma fram yngsta, mið og elsta lúðrasveit skólans. Það kennir ýmissa grasa í efnisskrá tónleikanna, en þó einkennast þeir af kvikmyndatónlist sem verður þema tónleikanna. Jafnframt verða sýnd myndskeið úr viðkomandi kvikmyndum. Sem dæmi, þá verður leikin tónlist úr kvikmyndunum Kitty Kitty Bang Bang, The Simpsons, Forrest Gump og tónlist úr Disney-kvikmyndum.

Stjórnendur lúðrasveitanna eru Áki Ásgeirsson, Baldvin I. Tryggvason, Emil Þ. Emilsson, Harpa Jóhannsdóttir og Karen J. Sturlaugsson.

Búast má við skemmtilegri stemmningu og líflegum tónleikum.  Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.

Kennsla hefst þriðjudaginn 27. ágúst

Nú standa yfir starfsdagar í Tónlistarskólanum, þar sem verið er að setja saman stundatöflur og klára annan undirbúning fyrir skólaárið sem er að hefjast.

Kennsla hefst í öllum námsgreinum, þriðjudaginn 27. ágúst.

Hljóðfærakennarar/söngkennarar munu hafa samband við nemendur/forráðamenn á næstu dögum, þ.e. fyrir 27. ágúst, og tilkynna tíma í þeim námsgreinum sem nemendur eiga að sækja.

Vortónleikar hljómsveita og skólaslit

Þriðjudagur 21. maí: 25 ára afmælistónleikar Léttsveitarinnar í Stapa kl.20.00. Fram kemur Léttsveitin eins og hún er skipuð núna og einnig Léttsveit fyrrum félaga í sveitinni.

Miðvikudagur 22. maí: Vortónleikar lúðrasveitarinnar kl. 19.30 í Stapa. Fram koma yngsta, mið og elsta sveit.

Fimmtudagur 23. maí: Skólaslit kl.18.00 í Stapa. Tónlistaratriði, afhending áfangaprófsskírteina og vitnisburðarblöð vetrarins afhent.

Vortónleikar 2013 – yfirlit

10. maí fös.

  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Þorvalds Más á sal TR við Austurgötu

13. maí mán.

  • kl.17:00 Vortónleikar nem. Geirþrúðar, Berglindar, Vilborgar og Jóns. í Bíósal, Duus
  • kl.18:00 Vortónleikar nem. Geirþrúðar, Berglindar, Vilborgar og Jóns í Bíósal, Duus
  • kl. 19:00 Vortónleikar nem. Bjargeyjar og Guðríðar í Bíósal, Duus
  • kl. 20:00 Vortónleikar nem. Önnu Málfríðar í Bíósal, Duus

14. maí þrið.

  • kl. 17:15 Vortónleikar nem. Helgu Aðalheiðar í Bíósal, Duus
  • kl. 17:30 Vortónleikar Rytmískadeildar á sal FS
  • kl. 18:00 Vortónleikar nem. Sigurjóns í Bíósal, Duus
  • kl. 19:15 Vortónleikar Rytmískadeildar á sal TR við Austurgötu

15. maí mið.

  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Ragnheiðar í Bíósal , Duus
  • kl. 18:30 Vortónleikar nem. Aleksöndru og Páls í Bíósal, Duus
  • kl. 19:00 Vortónleikar nem. Germans á sal TR við Þórustíg

16.maí fimm.

  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Steinars og Snæbjörns. í Bíósal, Duus
  • kl. 17:30 Vortónleikar Strengjasveitar TR í Y.-Njarðv.kirkju
  • kl. 18:00 Vortónleikar nem. Hörpu í Bíósal, Duus
  • kl. 18:00 Vortónleikar nem. Tónvers á sal TR við Þórustíg
  • kl. 20:00 Vortónleikar nem. Söngdeildar í Bíósal, Duus

17. maí fös.

  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Grétu í Bíósal, Duus
  • kl. 17:00 Vortónleikar nem. Örvars á sal TR við Þórustíg
  • kl. 17:00 Vortónleikar Gítarsamspil TR í Y.-Njarðv.kirkju

21.maí þrið.

  • kl. 16:45 Vortónleikar nem. Önnu Hugad. í Bíósal, Duus
  • kl. 18:00 Vortónleikar nem. Unnar í Bíósal, Duus
  • kl.20.00  25 ára afmælistónleikar Léttsveitarinnar í Stapa

22.maí miðv.

  • kl. 19:30 Vortónleikar Lúðrasveita TR í Stapa

23. maí fimm. Síðasti kennsludagur

  • kl. 18:00 Skólaslit í Stapa

Kennaratónleikar

Nokkrir af kennurum skólans standa fyrir tónleikum í Bíósal, Duushúsum, laugardaginn 4. maí kl.14.00. 

Fram koma Anna Hugadóttir, víóluleikari, Berglind Stefánsdóttir, flautuleikari, Gréta Rún Snorradóttir, sellóleikari, Sigurjón Bergþór Daðason, klarinettleikari, Þorvaldur Már Guðmundsson, gítarleikari og Örvar Ingi Jóhannesson, píanóleikari. 

Á tónleikunum verður leikin fjölbreytt efnisskrá, bæði í einleik og samleik, með vel þekktum klassískum verkum í bland við skemmtileg smálög. 

Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.

 

 

Prófdagar hafnir í hljóðfæraleik og söng

Nú eru Ársprófin hafin fyrir nemendur í hljóðfæranám og söng. Prófin standa yfir frá og með deginum í, fimmtudaginn 18. apríl til og með miðvikudeginum 24. apríl. Allir nemendur eiga að vera komnir með prófdag, próftíma og staðsetningu.

Þessa daga fellur kennsla niður í hljóðfæradeildum og söngdeild. Í einstaka tilfellum gætu þó nemendur átt að mæta í tíma, en þá hefur kennari tekið það sérstaklega fram.

Athugið að kennsla í tónfræðagreinum, samspili og hljómsveitum fellur EKKI niður.

STÓR-tónleikar Lúðrasveitin (D-sveit) og Hljómsveitin Valdimar

Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og Hljómsveitin Valdimar halda sannkallaða Stór-tónleika á kosningadaginn, laugardaginn 27. apríl n.k. kl.19.30 í Andrews-leikhúsi.  Flutt verða þekktustu lög Hljómsveitarinnar Valdimars í splunkunýjum útsetningum fyrir þessar tvær hljómsveitir.

Miðasala er hafin á midi.is og er miðaverð aðeins kr. 2000

Það má enginn láta þessa tónleika fram hjá sér fara. Athugið að Andrews leikhús tekur ekki nema um 490 manns. „Fyrstir koma –  fyrstir fá“.

Sigmar Marijón sigraði í harmonikukeppni S.Í.H.U.

Sigmar Marijón Friðriksson, harmonikunemandi við skólann, sigraði í harmonikukeppni S.Í.H.U. Sambands íslenskra harmonikuunnenda, sem haldin var í Garðabæ s.l. laugardag. Hann keppti í flokki 12 ára og yngri.

Þetta er keppni til Íslandsmeistara og Sigmar ber því titilinn „Íslandsmeistari í harmonikuleik 2013“,  í sínum aldursflokki.

Kennari Sigmars Marjóns er German Khlopin.

Tónlistarskólinn óskar Sigmari og German til hamingju með sigurinn.

Hægt er að sjá myndir frá keppninni á www.harmoniku-unnendur.com