Menntastefna Reykjanesbæjar
Nú fyrir stuttu gaf Reykjanesbær út nýja menntastefnu og er hún aðgengileg hér á síðunni undir „Almennar upplýsingar“.
Hljómahöll – Hjallavegi 2 – 260 Reykjanesbær – 420 1400 – tonlistarskoli@tonrnb.is
Nú fyrir stuttu gaf Reykjanesbær út nýja menntastefnu og er hún aðgengileg hér á síðunni undir „Almennar upplýsingar“.
Barnakór Tónlistarskólans er ætlaður börnum á aldrinum 9-12 ára (4. til 7. bekk), bæði nemendum Tónlistarskólans sem og öðrum börnum búsettum í Reykjanesbæ. Kórinn mun æfa á þriðjudögum kl. 17-18 og á föstudögum frá kl.14.30-15.30 í Tónlistarskólanum, Hjallavegi 2. Nýjir umsækjendur verða teknir í raddprófun áður en inntaka í kórinn verður staðfest. Raddprófun fer fram í Tónlistarskólanum föstudaginn 9. september kl.14.30.
Börn sem ekki eru nemendur Tónlistarskóla Reykjanesbæjar ber að greiða kórgjald, kr. 20,000 fyrir veturinn – sjá gjaldskrá skólans hér á vefsíðunni. Almennir nemendur Tónlistarskólans greiða hins vegar ekki kórgjaldið.
Stjórnandi og kennari kórsins er Birta Rós Sigurjónsdóttir.
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum 7. september n.k. Sótt er um á skrifstofu skólans, Hjallavegi 2 eða í síma 420-1400 frá kl. 13-17.
Skóladagatal fyrir veturinn 2016-2017 er nú komið á vefinn og hægt að nálgast það hér að ofan undir „Skólinn og námsumhverfið“.
Kennsla á hljóðfæri og í söng hefst fimmtudaginn 25. ágúst og kennsla í tónfræðigreinum fimmtudaginn 1. september. Umsjónarkennarar munu hafa samband við sína nemendur á starfsdögum, frá 18. – 24. ágúst, og úthluta tímum í hljóðfærakennslu og hóptímum.
Hljómsveitastarf hefst strax í upphafi kennslu, en það er þó aðeins mismunandi eftir deildum. Hljómsveitastjórar munu hafa samband vegna þess.
Síðasti kennsludagur vetrarins er föstudagurinn 20. maí. Skólaslit fara fram þann 26. maí kl.18 í Stapa. Þar verður boðið upp á tónlistaratriði, nemendur sem luku áfangaprófum fá prófskírteini sín og verða Hvatningaverðlaun skólans og Íslandsbanka veitt. Allir nemendur skólans eiga að mæta og taka við vitnisburðarskjölum frá sínum kennurum.
Á morgun, fimmtudaginn 5. maí, er Uppstigningadagur og frí í Tónlistarskólanum.
Umsóknir nýrra nemenda um skólavist næsta skólaár eru hér á vef skólans, undir hnappnum „Nýjar umsóknir“
Einnig er hægt að sækja um á vef Reykjanesbæjar, reykjanesbaer.is undir hnappnum „Tónlistarskóli Reykjanesbæjar-Nýjar umsóknir“.
Þetta tekur gildi miðvikudaginn 20. apríl.
Sömuleiðis er hægt að sækja um skriflega á umsóknareyðublöð sem liggja frammi á skrifstofu skólans, Hjallavegi 2.