- Nemendur á grunnskólaaldri eru undanþegnir 1 metra fjarlægðarreglu og grímuskyldu, en við hvetjum þau, sem og alla okkar nemendur til fyllstu varkárni og persónulegra sóttvarna.
- Leyfilegur hámarksfjöldi starfsfólks og nemenda er 500 í rými.
- Blöndun hópa er heimil, hvort sem um ræðir nemendur eða starfsfólk.
- Forráðamenn, aðstandendur og aðrir utanaðkomandi eiga að sýna aðgát þegar þeir koma inn í skólabygginguna og gæta að sóttvörnum.
- Grímunotkun er valkvæð.
- Um viðburði á vegum skólans gilda sömu sóttvarnaráðstafanir og um 500 manna fjöldatakmörkun fullorðinna.
Category: Tilkynningar
Upphaf skólaársins 2021-2022
Skrifstofan opnar eftir sumarleyfi þriðjudaginn 18. ágúst
og er opin mán-fim frá kl.9-17 og fös frá kl.9-16.
Þau sem hafa fengið inngöngu í nám fengu staðfestingu á skólavist í júní sl.
Aðrir fara sjálfkrafa á biðlista.
Kennsla í hljóðfæragreinum og söng hefst fimmtudaginn 26. ágúst.
Kennsla í tónfræðagreinum hefst mánudaginn 30. ágúst
Önnur samspil og hóptímar hefjast eins fljótt og auðið er, kennarar láta sína nemendur vita.
Umsjónakennarar hafa samband við sína nemendur varðandi tímasetningar allra einka- og hóptíma.
NETnótan
NETnótan uppskeruhátíð tónlistarskóla 2021 verður sýnd í þremur þáttum á N4 í júní. Tónlistarskólar sendu inn myndbönd úr skólastarfinu sem N4 fléttuðu saman í skemmtilega þætti.Myndbönd hvers skóla, í heild sinni, verða birt á vefsíðu KÍ og FB síðu Nótunnar á sama tíma og viðkomandi sjónvarpsþáttur verður sýndur. Þegar allir þættirnir hafa verið sýndir verða svo öll myndböndin einnig aðgengileg í N4 safninu á sjónvarpi símans.Þættirnir verða sýndir sunnudagana 13., 20. og 27. júní kl. 20.30, endilega fylgist með!
Hvatningaverðlaun 2021-2022

Ár hvert veitir Íslandsbanki í Reykjanesbæ hvatningaverðlaun þeim nemanda eða nemendum sem hafa sýnt mikla hæfileika og dugnað í námi hjá okkur síðustu ár og borgar bankinn skólagjöld næsta skólaárs.
Þetta er í sextánda sinn sem Hvatningarverðlaun Íslandsbanka til nemanda við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar eru veitt, og hefur þetta samstarf bankans og Tónlistarskólans verið afar ánægjulegt og farsælt.
Sá nemandi sem hlýtur Hvatningarverðlaun Íslandsbanka fyrir skólaárið 2021-2022 er Magnús Már Newman, nemandi í slagverksleik og rytmísku píanói. Magnús er gæddur sérlega góðum tónlistarhæfileikum og hann hefur þroskað þá einstaklega vel í námi sínu við Tónlistarskólann. Hann hefur stundað tónlistarnám sitt af miklum dugnaði og samviskusemi, bæði hljóðfæranámið og allar hliðargreinar. Þegar hæfileikar og dugnaður fara saman, þá verður árangurinn góður.
Á síðustu misserum hefur Magnús verið í mjög umfangsmiklu námi við Tónlistarskólann, bæði í tvöföldu hljóðfæranámi, nokkrum hljómsveitum og minni samspilum sem og stundað tónfræðagreinarnar af kappi og er kominn vel á veg inn í framhaldsnáms-stigið í þeim námsgreinum.
Magnús hefur verið leiðandi slagverksnemandi skólans um nokkurt skeið og hefur axlað þá ábyrgð af stakri prýði. Hann hefur alltaf verið duglegur og jákvæður í skólastarfinu, sóst í að taka að sér verkefni til að þroska sig í tónlistinni og mjög oft komið fram opinberlega fyrir hönd skólans, bæði einn og í minni sem stærri hópum.
Magnús Már á mikla framtíð fyrir sér á tónlistarsviðinu og vonandi verður sá heiður að hljóta Hvatningarverðlaun Íslandsbanka, til þess að efla hann enn frekar á því sviði.
Skólalok
Síðasti kennsludagur þessa skólaárs er miðvikudagurinn 26. maí, eftir það taka við starfsdagar og endar skólaárið með skólaslitum sem fara fram í Stapa mánudaginn 31. maí kl.18:00. Vegna fjöldatakmarkana er aðeins gert ráð fyrir starfsfólki skólans, nemendum sem luku áfangaprófum, nemendum sem flytja tónlistaratriði og handhafa Hvatningarverðlaunum Íslandsbanka. Fyrir aðra verður hægt að fylgjast með beinu streymi á Youtube-rás skólans hér.
Takk fyrir veturinn og gleðilegt sumar!
Endurnýjun og nýjar umsóknir
Nú er heppilegur tími til að sækja um fyrir skólaárið 2021-2022.
Við getum bætt við okkur nokkrum nýjum nemendum á ýmis hljóðfæri og viljum við sérstaklega vekja athygli á kynningarnámi á blásturshljóðfæri. Það nám er ætlað nýjum nemendum í 3. – 5. bekk á málm- og tréblásturshljóðfæri. Skólagjöldin eru einungus 60.000kr. og er hljóðfæraleiga innifalin. Allar helstu upplýsingar um það nám er að finna hér að ofan undir hlekknum „Kynningarnám á blásturshljóðfæri“
Sótt er um allt nám undir hnappnum „Endurnýjun og nýjar umsóknir“ hér að ofan og þar endurnýja núverandi nemendur skólans einnig umsókn sína og staðfesta skólavist fyrir næsta skólaár.
Sumardagurinn fyrsti og ársprófavika
Fimmtudaginn 22. apríl er Sumardagurinn fyrsti og eins og síðustu ár er það frídagur.
Vikuna 26. – 30. apríl er ársprófavika í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar. Þá viku fara allir nemendur í próf á sínu hljóðfæri og falla einkatímar niður. Hóptímar, s.s. kjarni og hljómsveitir, eru hins vegar á sínum stað.
Kennarar láta sína nemendur hvenær og hvar þau eiga að mæta í próf.
Skólastarf eftir páska
Kæru nemendur og forráðamenn. Við vonum að þið hafið átt gott páskafrí og eruð tilbúin í rútínuna.
Á morgun þriðjudag, 6. apríl, er starfsdagur hjá okkur og hefst kennsla samkvæmt stundaskrá á miðvikudaginn 7. apríl. Öll kennsla er leyfð í húsinu hjá okkur og úti í grunnskólunum með smávægilegum takmörkunum.
Hlökkum til að sjá ykkur!

Lok og læs!
Kæru nemendur, forráðamenn og aðrir velunnarar
Vegna tilskipana frá sóttvörnum og ráðuneytum og í samráði við fræðsluyfirvöld Reykjanesbæjar, þá verður Tónlistarskólinn lokaður og þar af leiðandi engin kennsla á morgun fimmtudaginn 25.mars og föstudaginn 26.mars.
Eftir það tekur við páskafrí. Upplýsingar um hvaða skipulag tekur við eftir páskafrí koma síðar þegar ljóst er hvaða reglur gilda þá um skólahald.
Gleðilega páska!
Tónleikar í mars
Ásamt almennum nemendatónleikum þá eru allmargir stærri tónleikar á dagsskrá hjá okkur í mars.
Árlegu stórtónleikar Forskóla 2 og lúðrasveitar C fara fram fimmtudaginn 18. mars kl.17 og kl.18 í Stapa. Tónleikarnir verða áhorfendalausir en hægt að fylgjast með þeim á Youtube-rás skólans.
Söng- og hljómborðsdeild leiða saman hesta sína með tónleikum föstudaginn 19. mars kl.17:30 í Bergi.
Tónleikar framhaldsnemenda fara svo fram mánudaginn 22. mars og þriðjudaginn 23. mars, báðir byrja þeir kl.19:30 og eru í Bergi.
Þessum tónleikum verður streymt á Youtube-rás skólans hér