Öskudagur
Eins og síðustu ár er starfsdagur hjá okkur á Öskudag. Þá er engin kennsla, hvorki hóptímar né einkatímar.
Hljómahöll – Hjallavegi 2 – 260 Reykjanesbær – 420 1400 – tonlistarskoli@tonrnb.is
Eins og síðustu ár er starfsdagur hjá okkur á Öskudag. Þá er engin kennsla, hvorki hóptímar né einkatímar.
ATH! – Vegna óviðráðanlegra aðstæðna þurfum við að hætta við fyrirhugaða dagsská í tilefni af Degi Tónlistarskólanna laugardaginn 17. febrúar.
Tónlistarskólar landsins eru um níutíu talsins og standa fyrir gríðarlega fjölbreyttu og öflugu skólastarfi. Einn dagur á ári „Dagur tónlistarskólanna“ er tileinkaður þeim og efna skólarnir þá til ýmiskonar viðburða til að brjóta upp skólastarfið og vekja athygli á starfsemi sinni. Markmiðið er að auka sýnileika og styrkja tengsl tónlistarskóla við nærsamfélagið.
Dagur tónlistarskólanna er haldinn annan laugardag í febrúar ár hvert, sem að þessu sinni ber upp á þann 10. febrúar. Dagurinn verður haldinn hátíðlega laugardaginn 17. febrúar í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar heldur Dag tónlistarskólanna hátíðlegan að venju með fjölbreyttri dagskrá í Tónlistarskólanum, Hjallavegi 2 sem hefst með opnun Kaffihúss Strengjadeildar kl.10.45 en ágóðinn rennur í ferðasjóð Strengjadeildar. Nemendur Forskóla 2 fá hljóðfærakynningu og prufutíma á hljóðfæri frá kl.11-12 og á sama tíma verða „Ör-tónleikar“ á þremur tónleikastöðvum í skólanum. Tónfræðikeppnin Kontrapunktur hefst kl.12 í tónleikasalnum Bergi og endar dagsskrá dagsins með tónleikum þar sem hljómsveitir kallast á á göngum skólans.
Dagsskrá:
10.45 Kaffihús Strengjadeildar opnar
11.00 -12.00 Hljóðfærakynningar og prufutímar fyrir nemendur Forskóla 2
Ör-tónleikar til skiptis á 3 tónleikastöðvum í skólanum
12.00-12.50 Tónfræðikeppnin Kontrapunktur í Bergi. Öllum velkomið að fylgjast með
12.50 „Hljómsveitir kallast á“. Strengja-/Gítarsveit og yngri Lúðrasveit „tala saman“
Tónver skólans starfrækir netsjónvarp á Facebooksíðu hans meðan á dagskránni stendur
Kaffihús Strengjadeildar verður opið frá 10.45-13.15
Ágóðinn rennur í ferðasjóð Strengjadeildar
Allir hjartanlega velkomnir
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar óskar eftir að ráða skólaritara í 50% starf. Nánari upplýsingar um starfið og umsókn má nálgast hér á viðhengi.
https://reykjanesbaer.hcm.is/storf/ViewJobOnWeb.aspx?jobid=9674
Vegna veðurs þurfum við að fella niður alla kennslu í dag 11. janúar frá kl.15:30.
Sunnudaginn 14. janúar 2018 verður haldin Innanlandsráðstefna EPTA í Bergi tónleika- og fyrirlestrarsal Tónlistarskóla Reykjanesbæjar frá kl. 10:00-19:00.
Dagskrá Innanlandsráðstefnunnar verður fjölbreytt og metnaðarfull, Björg Brjánsdóttir flautuleikari kynnir Timaniaðferðina um góða líkamsbeitingu við hljóðfæraleik, Bjargey Þrúður Ingólfsdóttir, deildarstjóri hljómborðsdeildar í Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fjallar um spunakennslu píanónema, Kári Árnason, sjúkraþjálfari fjallar um áhrif hljóðfæraleiks á stoðkerfið og Sunna Gunnlaugsdóttir, jazzpíanóleikari fjallar um kennslu í ritmísku píanónámi. Prófessor Julia Mustonen-Dahlkvist, deildarstjóri píanódeildar Ingesund College of Music við háskólann í Karlstad fjallar um undirbúning nemenda fyrir keppnir og situr fyrir svörum ráðstefnugesta en nemendur hennar hafa unnið til verðlauna víða um heim. Ráðstefnunni lýkur með með spennandi tónleikum nemanda Mustonen-Dahlkvist og rísandi stjörnu í píanóheiminum, Aristo Sham sem hlotið hefur fjölmörg verðlaun í alþjóðlegum keppnum á ferli sínum. Á efnisskránni verða verk eftir Scarlatti, Scriabin, Liszt, Brahms og Barber.
Hægt verður að kaupa dagspassa samdægurs á ráðstefnuna og einnig verður hægt að kaupa miða á tónleika Aristo Sham eingöngu sem hefjast kl. 17:30. Verð dagspassa: kr. 15.000 (innifalið súpa og kaffi) og verð tónleikamiða: kr. 2500 / 1500 fyrir námsmenn, aldraða og öryrkja.
Dagskrá ráðstefnunar má nálgast hér http://epta.is/is/ og á fb síðu ráðstefnunnar
https://www.facebook.com/events/959240370891969/permalink/959313224218017/
Það er mikið um að vera núna í desember og eru um 30 jólatónleikar á dagsskrá. Undir flipanum „Viðburðir“ hér að ofan má nálgast jóladagskránna. Á þessa tónleika eru allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.
Einnig vekjum við athygli að því að jólaútgáfa Tónvísis, fréttabréf skólans, er aðgengileg hér að ofan.
Tónlistarskólinn verður í vetrarfríi föstudaginn 20. okt og mánudaginn 23. okt. Þá fellur niður öll kennsla.
Eyþór Eyjólfsson, sem ber listamannsnafnið Ethoríó, færði Tónlistarskólanum fyrir nokkrum dögum fallegt málverk af Rúnari Júlíussyni tónlistarmanni, þar sem hann skartar því sem hann var þekktastur fyrir, tónlist og knattspyrnu.
Eyþór sem er mjög flinkur trommuleikari, er fyrrum slagverksnemandi skólans og hefur spilað með bæði lúðrasveit og léttsveit skólans auk ýmissa samspilshópa. Auk þess hefur hann starfað með rokkhljómsveitum utan skólans. Með þessari fallegu gjöf, vill Eyþór þakka Tónlistarskólanum fyrir þá tónlistarmenntun, reynslu og þroska sem hann öðlaðist í námi sínu við skólann.
Eyþór stundaði myndlistarnám við LHÍ og er á leið í áframhaldandi myndlistarnám í Bournemouth í Englandi.
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar þakkar Eyþóri innilega fyrir þessa höfðinglegu gjöf og hans hlýja hug til skólans.
Skólinn býður upp á tvenn söngnámskeið í haust, eitt ætlað söngelskum frá 15 ára aldri og annað ætlað kórafólki. Frekari upplýsingar eru undir „Söngnámskeið“ hnappnum hér að ofan.