Nýjar námsleiðir frá og með næsta skólaári

Frá og með næsta skólaári, 2022-2023, munum við bjóða upp á þrjár nýjar námsleiðir. Annars vegar er það sérstakt lúðrasveitarnám fyrir byrjendur á blásturshljóðfæri og hins vegar tvær nýjar leiðir innan klassískrar söngdeildar.

Lúðrasveitarnám.

Lúðrasveitarnámið á blásturshljóðfæri (áður „kynningarnám“) er ætlað börnum sem eru í 3. og 4. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar og eru að sækja um nám við Tónlistarskólann í fyrsta sinn. Hljóðfærin sem í boði verða eru málmblásturshljóðfæri (trompet, althorn, baritónhorn, básúna, túba) og tréblásturshljóðfæri (þverflauta, klarinett, saxófónn).
Um er að ræða samfellt nám allt skólaárið en hljóðfæratímar verða styttri en venja er, eða
2 x 20 mínútur á viku, sem er 60% af hefðbundinni lengd kennslustunda í hljóðfæranámi og Tónlistarskólinn mun útvega nemendum hljóðfæri þeim að kostnaðarlausu.
Auk þess að nemendur læri á leika á það blásturshljóðfæri sem þeir velja sér, þá er markmiðið er að nemendur myndi lúðrasveit á haustönninni og kynnist því að vinna í tónlistarhópi og þeirri ábyrgð og tillitssemi sem því fylgir. Þegar að því kemur bætist lúðrasveitaræfing við hljóðfæranámið, 1 sinni í viku í 45 mínútur í senn, utan skólatíma.


Umsóknir eru hér á vefsíðu skólans undir flipanum „Endurnýjun og nýjar umsóknir“.

Fylla þarf umsóknina vandlega út og skrifa „Lúðrasveitarnám“ í athugasemdir. 

Vakin skal athygli á því að ekki er um mjög mörg pláss að ræða.
Innritað er fyrir allt skólaárið og verða námsgjöld alls kr. 60.000 fyrir veturinn.

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst n.k.

Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Tónlistarskólans í síma 420-1400 frá kl. 9-17

eða í tölvupósti á tonlistarskoli@tonrnb.is

Söngleikjadeild.

Tónlistarskólinn mun bjóða upp á sérstaka deild sem hefur það að markmiði að þjálfa nemendur í leiklist, söng og hreyfingum á söngleikjasviði.  Námið hentar öllum sem hafa áhuga á söngleikjum og sviðslistum og er einstaklega gagnlegt fyrir nemendur sem stefna á að taka þátt í söngleikjum sem settir eru upp í bæjarfélaginu eða nemendur sem hyggjast fara í leiklistarnám eða söngleikjanám hérlendis eða erlendis. Söngleikjadeildin er ætluð nemendum í 9. og 10. bekk grunnskóla og nemendum í framhaldsskóla og eru með lögheimili í Reykjanesbæ.

Söngleikjadeildin er tveggja ára nám. Nemendur fá söngkennslu einu sinni í viku í 30 mínútur. Síðan er hóptími einu sinni í viku í 60 mínútur þar sem farið verður í sviðsframkomu og  nemendum gefst tækifæri til að syngja saman í smærri eða stærri hóp þau lög sem verið er að vinna með í hvert skipti. Nemendur fá undirleikstíma einu sinni í viku til að æfa lög sem verið er að vinna með.

Á seinna árinu bætist nótnalestur við í 20 mínútur á viku. Í þeim kennslustundum verður farið í undirstöðuatriði í nótnalestri.  

Ef nemendur vilja halda áfram námi eftir að Söngleikjadeild lýkur, flytjast þeir sjálfkrafa yfir í almenna söngdeild.

Umsóknir eru hér á vefsíðu skólans undir flipanum „Endurnýjun og nýjar umsóknir“.

Fylla þarf umsóknina vandlega út.

Haka skal við „Klassískt nám“ og skrifa síðan „Söngleikjadeild“ í athugasemdir.

Umsóknarfrestur er til og með 19. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Tónlistarskólans í síma 420-1400 frá kl. 9-17

eða í tölvupósti á tonlistarskoli@tonrnb.is  Innritað er fyrir eitt skólaár í senn.

Námsgjald fyrir skólaárið er kr.70.000 sem Reykjanesbær innheimtir í gegn um heimabanka.

Skipta má gjaldinu í 3 greiðslur.

Kórdeild.

Um er að ræða sérstaka deild ætlaða einstaklingum, óháð aldri, sem eru í kór eða hafa áhuga á því að vera í kór og vilja auka við söngkunnáttu sína og bæta raddbeitingu. Nemendur þurfa að hafa lögheimili í Reykjanesbæ.

Nemendur Kórdeildar fá einkatíma í söng einu sinni í viku í 30 mínútur og kennslu í nótnalestri einu sinni í viku í 20 mínútur, en þar verður lögð áhersla á undirstöðuatriði í að lesa hryn og tónferli. Kórdeild er eins árs nám. Ef nemendur vilja halda áfram námi eftir að kórdeildarnámi lýkur, flytjast þeir sjálfkrafa yfir í almenna/klassíska söngdeild.

Umsóknir eru hér á vefsíðu skólans undir flipanum „Endurnýjun og nýjar umsóknir“.

Fylla þarf umsóknina vandlega út.

Haka skal við „Klassískt nám“ og setja síðan „Kórdeild“ í athugasemdir. 

Umsóknarfrestur er til og með 31. ágúst n.k.
Nánari upplýsingar veitir skrifstofa Tónlistarskólans í síma 420-1400 frá kl.9-17 virka daga.

Innritað er fyrir allt skólaárið.

Námsgjald fyrir skólaárið er kr. 48.000 sem Reykjanesbær innheimtir í gegn um heimabanka.

Skipta má gjaldinu í 3 greiðslur.

Framhaldsprófstónleikar


Alexander Fryderyk Grybos, gítarnemandi við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, heldur framhaldsprófstónleika sína í Bergi, Hljómahöll, mánudaginn 23. maí kl.19:30. Tónleikarnir eru síðari hluti framhaldsprófs samkvæmt námskrá tónlistarskóla.
Alexander hóf nám í klassískum gítarleik við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar árið 2011 hjá Aleksöndru Pitak og hún hefur verið aðalkennari hans síðan. Alexander hóf svo nám í rytmískri deild skólans árið 2017 á rafmagnsgítar, sem hann hefur stundað meðfram náminu á klassíska gítarinn og hafa aðalkennarar hans þar verið Aron Örn Óskarsson og Kristinn Þór Óskarsson. Eftir að Alexander lauk miðprófi í klassískum gítarleik árið 2018, hefur hann stefnt ótrauður að framhaldsprófinu.
Alexander hefur í gegn um árin verið mjög virkur í starfsemi Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og margsinnis komið fram á tónleikum skólans, sem og fyrir hönd hans á margvíslegum öðrum viðburðum, bæði einn með gítarinn og í gítarsamspilum skólans. Alexander heldur úti, ásamt félögum sínum, tveimur hljómsveitum í popp- og rokkgeiranum, Demo og Karma Brigade.
Alexander hefur um árabil verið félagi í Bjöllukór Tónlistarskóla Reykjanesbæjar og komið víða fram á þeim vettvangi, m.a. á jólatónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands nokkur undanfarin ár. Alexander fer í sumar í tónleikaferð til Bandaríkjanna með Bjöllukórnum.

Endurnýjun umsókna

Nú er komið að því að endurnýja umsóknir fyrir næsta skólaár, 2022-2023. Hér á vefsíðu skólans: tonlistarskoli.reykjanesbaer.is er hnappur sem heitir „Endurnýjun og nýjar umsóknir“ og þar fyllið þið út umsóknina. Efst á henni eru leiðbeiningar á grænu svæði einnig eiga nemendur/forráðamenn að hafa fengið póst með leiðbeiningum.

LOKADAGUR FYRIR ENDUNÝJUN UMSÓKNA ER FÖSTUDAGURINN 20. MAÍ N.K.

Hátíðartónleikar Hljómborðsdeildar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar

Þriðjudaginn 26. apríl heldur Hljómborðsdeild Tónlistarskóla Rekjanesbæjar Hátíðartónleika í Stapa, Hljómahöll. Tónleikarnir hefjast kl.18 og gengið er inn um inngang Stapa. 

Vakin er athygli á því að tónleikunum verður ekki streymt.

Þetta er í fyrsta sinn sem deildin heldur tónleika með þessari yfirskrift, en stefnt er á að þeir verði árlegur viðburður í tónleikahaldi skólans.

Fram koma liðlega 30 nemendur deildarinnar, þ.e. píanó- og harmonikunemendur, sem annars telur um 100 nemendur,  og flytja úrval einleiks- og samleiksverka.

Allir eru velkomnir.

Tónleikaröð mið- og framhaldsnemenda

Dagana 28. mars til 1. apríl stendur skólinn fyrir sérstakri tónleikaröð þar sem fram koma nemendur í miðnámi og framhaldsnámi við skólann. Alls er um 6 tónleika að ræða og nánari upplýsingar eru hér fyrir neðan.

Allir tónleikarnir verða í Bergi, tónleikasal skólans og Hljómahallar og eru gestir velkomnir. Tónleikunum verður jafnframt streymt á YouTube rás skólans.  

Skólinn hefur um langt árabil staðið fyrir sérstökum tónleikum framhaldsnámsnemenda en að þessu sinni verða einnig tónleikar miðnámsnemenda. Umsagnaraðilar úr hópi kennara skólans munu leggja mat á frammistöðu nemenda. Gaman er að nefna það að Tónlistarskólinn hefur ekki áður haft frammistöðu nemenda á tónleikum sem sérstakan námsþátt og verður því áhugavert að sjá hvernig til tekst.

Tónleikar lengra kominna nemenda

28. mars kl. 19:30

29. mars kl. 19:30

Tónleikar miðnámsnemenda

30. mars kl. 17:00

30. mars kl. 18:00

31. mars kl. 17:00

1. apríl kl. 17:00

Stór-tónleikar Forskóladeildar

Fimmtudaginn 17. mars n.k., stendur Forskóladeild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fyrir tvennum Stór-tónleikum í Stapa, Hljómahöll. Á tónleikunum koma fram nemendur í Forskóla 2, sem eru allir nemendur 2. bekkjar grunnskólanna (7 ára börn) ásamt Lúðrasveit TR.

Fyrri tónleikarnir verða kl.17. Á þeim koma fram forskólanemendur úr Háaleitisskóla, Holtaskóla og Stapaskóla.

Seinni tónleikarnir verða kl.18. Á þeim koma fram forskólanemendur úr Akurskóla, Heiðarskóla, Myllubakkaskóla og Njarðvíkurskóla.

Tónleikarnir taka um 30 mínútur hvor. Aðgangur er ókeypis og allir hjartanlega velkomnir. Tónleikunum verður jafnframt streymt á YouTube-rás skólans.

Forskóladeildin hefur um langt árabil staðið fyrir Stór-tónleikum einu sinni á vetri, ásamt lúðrasveitinni, sem er í hlutverki „undirleikara“ fyrir forskólanemendurna. Fyrstu árin fóru tónleikarnir fram í grunnskólunum og svo lokatónleikar haldnir í Íþróttamiðstöð Njarðvíkur, en fyrir nokkrum árum var ákveðið að færa tónleikana í hinn glæsilega tónleikasal, Stapa í Hljómahöll og halda þar tvenna tónleika. Mikil ánægja hefur verið með það fyrirkomulag enda öll umgjörð tónleikanna hin glæsilegasta, stórt svið og flott sviðslýsing. Á tónleikunum koma fram alls um 300 börn og unglingar, þar af um 260 forskólanemendur, sem flytja fjölbreytta og stórskemmtilega efnisskrá.  

Nemendatónleikar í mars og apríl

Fleiri nemendatónleikum hefur verið bætt við nú i mars og apríl. Við hlökkum mikið til að heyra í okkar frábæru nemendum og bjóðum gesti velkomna. Tónleikum verður þó áfram streymt og má nálgast link hér til hliðar.

Hefðbundnir nemendatónleikar í Bergi:

  • mán. 14. mars 17:30
  • þrið. 15. mars 17:30
  • fös. 18. mars  17:30
  • mán. 21. mars 17:30
  • miðv. 23. mars 17:30
  • fös. 8. apríl 17:30

Aðrir tónleikar

  • mán. 28. mars kl. 19:30 Tónleikar lengra kominna nemenda.
  • þrið. 29. mars kl. 19:30 Tónleikar lengra kominna nemenda.
  • miðv. 30. mars kl. 17 og kl. 18 Tónleikar miðnámsnemenda.
  • fimm. 31 mars kl. 17 og kl. 18 Tónleikar miðnámsnemenda.
  • fös. 1. apríl kl. 17 Tónleikar miðnámsnemenda.

Tónleikar 5. mars

N.k. laugardag, 5. mars kl.13:00 heldur MEGA-Hljómsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar tónleika í Bergi, Tónlistarskólanum / Hljómahöll. Hljómsveitin var sett saman fyrir stuttu síðan og er afmarkað verkefni nemenda skólans, en hljómsveitina skipa alls 21 nemandi á strengjahljóðfæri, klassíska gítara og blásturshljóðfæri auk tveggja kennara. Annar þeirra, Þórunn Harðardóttir, fiðlu- og víólukennari, er stjórnandi hljómsveitarinnar.Þessi samsetning á hljómsveit er frekar óvenjuleg, en samhljómurinn er afar fallegur þar sem mætast skerpa strengja- og blásturshljóðfæranna og mýkt gítaranna.Á efnisskrá tónleikanna, sem verða um hálftíma langir, eru 3 þjóðlög í sérstökum útsetningum fyrir áðurnefnda hljómsveitarsamsetningu.Gestir eru velkomnir auk þess sem tónleikunum verður streymt á YouTube-rás skólans.Það er gaman að geta þess að MEGA-Hljómsveitin verður eitt af framlögum Tónlistarskóla Reykjanesbæjar á „Nótunni – uppskeruhátíð tónlistarskóla“ sem fram fer í Salnum, Kópavogi, laugardaginn 19. mars n.k.