Hausttónleikar Lúðrasveitar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða haldnir fimmtudaginn 24. nóvember n.k. kl.19.30 í Stapa, Hljómahöllinni. Fram koma yngsta, mið og elsta sveit.
Það kennir ýmissa grasa í efnisskrá sveitanna á þessum tónleikum, en þó einkennast þeir af ríkjandi þema, sem er kvikmyndatónlist. Jafnframt verða sýnd myndskeið úr viðkomandi kvikmyndum. M.a. verður leikin tónlist úr kvikmyndunum Star Wars, Pirates of the Caribbean og The Incredables.
Stjórnendur lúðrasveitanna eru Harpa Jóhannsdóttir, Karen J. Sturlaugsson, Steinar M. Kristinsson og Þorvaldur Halldórsson.
Búast má við skemmtilegri stemmningu og líflegum tónleikum.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill. Allir áhugasamir eru eindregið hvattir til að mæta og taka með sér gesti
Month: nóvember 2011
Næstu tónfundir
Næstu tónfundir verða sem hér segir:
Á morgun, þriðjudaginn 8. nóvember kl.17.30
Fimmtudaginn 10. nóvember kl.17.30
Föstudaginn 11. nóvember kl.17.30
Tónfundirnir verða haldnir eins og venjulega í Bíósal Duus-húsa og allir eru velkomnir.