Léttsveit TK/TR 30 ára!
Léttsveit TK var stofnuð í september fyrir 30 árum síðan. Nú höldum við tónleika í tilefni afmælisins. Fram koma Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar undir stjórn Eyþórs Kolbeins og Stórsveit Suðurnesja, sem samanstendur af meðlimum fyrri sveita, undir stjórn Karenar Sturlaugsson. Allir velkomnir, sérstaklega fyrrverandi meðlimir! Aðgangur ókeypis.
Dagur íslenskrar tungu – tónleikar
Tónleikar píanó og söngnemenda við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar.
Degi íslenskrar tungu, fæðingardegi Jónasar Hallgrímssonar, verður fagnað með tónleikum föstudaginn 16. nóvember n.k. kl. 17:30 í Bergi, Hljómahöll.
Á tónleikunum munu söngnemendur flytja lög við ljóð nokkurra helstu skálda þjóðarinnar við undirleik píanónemenda.
Þetta er í fyrsta skipti sem hljómborðsdeild og söngdeild tónlistarskólans
halda tónleika af þessu tilefni.
Allir hjartanlega velkomnir!
Hausttónleikar Lúðrasveit TR
Lúðrasveitir skólans koma fram og spila efni sem nemendur þeirra hafa æft í haust. Lúðrasveitirnar eru tvær og er yngri sveitinni stjórnað af Þórörnu Salómé Brynjólfsdóttur og Ragnheiði Eir Magnúsdóttur, eldri sveitinni stjórna Harpa Jóhannsdóttir og Þorvaldur Halldórsson. Tónleikarnir eru þriðjudaginn 20. nóv kl.18:00 í Stapa. Allir velkomnir!