Næsti tónfundur er í dag, í Bíósal Duus-húsa kl.17.30. Fjölbreytt efnisskrá. Allir hjartanlega velkomnir.
Month: október 2011
Vetrarfrí
Föstudaginn 21. október og mánudaginn 24. október n.k. verður vetrarfrí í Tónlistarskólanum. Öll kennsla fellur niður þessa daga.
Skólalúðrasveit frá Færeyjum í heimsókn
Í dag, miðvikudaginn 19. október kemur unglingalúðrasveit frá Færeyjum í stutta heimsókn til okkar. Lúðrasveitin hefur undanfarna daga verið á ferðalagi um Vesturland og heimsótt Ólafsvík og Akranes. Frá Reykjanesbæ fer sveitin svo á föstudaginn til Reykjavíkur með viðkomu í Grindavík og Bláa lóninu.
Lúðrasveitin, sem er frá tónlistarskólanum á eyjunni Vágar, er skipuð rúmlega 30 tónlistarnemendum á aldrinum 11 til 15 ára, frá fjórum bæjum á eyjunni, sem eru Sörvágur, Miðvágur, Vatnsoyrar og Sandavágur.
Á morgun fimmtudaginn 20. október heldur lúðrasveitin tvenna skólatónleika í Akurskóla og skoðar síðan nokkra markverða staði í Reykjanesbæ, m.a. Víkingaheima og Duus-hús.
Um kvöldið verða haldnir tónleikar í Stapa, Hljómahöllinni, þar sem fram koma lúðrasveitin frá Vágum og Lúðrasveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar, C-sveit. Stjórnendur eru Joan Hovgaard og Harpa Jóhannsdóttir. Innan færeysku lúðrasveitarinnar er einnig 7 manna popphljómsveit sem kemur fram á tónleikunum.
Tónleikarnir hefjast kl.19.30. Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.
Svæðisþing tónlistarskóla
Fimmtudaginn 6. október n.k. verða kennarar og stjórnendur tónlistarskólans á svæðisþingi tónlistarskóla. Kennsla hjá okkur fellur því niður þann dag. Undantekning er þó sú að kennarar sem sóttu svæðisþing tónlistarskóla þegar það var haldið í Reykjavík fyrir stuttu, munu kenna á fimmtudaginn, t.d. Steinar Guðmundsson píanókennari og Þorkell Atlason tónfræðakennari.