Suzuki

Suzuki – blokkflauta og píanó

Tónlistarskólinn bauð um árabil upp á fiðlunám samkvæmt Suzuki-aðferðinni, en af óviðráðanlegum ástæðum varð að leggja það nám niður fyrir nokkrum árum. Haustið 2015 hóf skólinn á ný að kenna samkvæmt Suzuki-aðferðinni, á blokkflautu. Í nóvember 2017 bættist síðan Suzuki píanó við.

Námið er ætlað börnum á aldrinum 3 og eldri og skilyrði er að foreldri/forráðamaður fylgi barni sínu í náminu. Fyrstu vikurnar er námið í formi foreldrafræðslu sem miðar að því að foreldrar geti kennt barni sínu heima og stutt við það í náminu í framhaldi af kennslustundinni í tónlistarskólanum.
Spilatímar (einkatímar) eru 1 x 30 mínútur á viku og hóptími 60 mínútur aðra hvora viku. Í blokkflautu-hóptímana mætir píanóleikari til að spila undir/með nemendunum.
Suzuki-aðferðin er kennd við upphafsmann hennar, S. Suzuki og byggir á því að börn læra að leika á hljóðfæri með áþekkum hætti og það lærir móðurmálið sitt, enda er aðferðin oft kölluð „móðurmálsaðferðin“.

Upplýsingar um námsgjöld er að finna í gjaldskrá skólans hér á vefsíðunni.

Suzuki-blokkflautukennari er Ína Dóra Hjálmarsdóttir.
Meðleikari á píanó er Jelenna Raschke.
Suzuki-píanókennari er Guðríður Eva Halldórsdóttir.