Lúðra- og strengjasveitanám og Söngleikjadeild

Lúðrasveitanám og Strengjasveitanám fyrir nemendur í 3. – 5. Bekk og Söngleikjadeild fyrir 9. Og 10. Bekk og framhaldsskóla aldur

Tónlistarskóli Reykjanesbæjar vill vekja athygli á því að skólinn býður upp á sérstakt lúðrasveitarnám og strengjasveitarnám fyrir byrjendur á blásturshljóðfæri og strengjahljóðfæri. Einnig vekjum við athygli á því að skólinn bíður einnig upp á söngleikjadeild ætlaða þeim sem hafa sérstakan áhuga á söngleikjum og sviðslistum.

Lúðrasveitarnámið (blásturshljóðfæri) og strengjasveitarnámið (fiðla, víóla og selló) er ætlað börnum sem eru í 3., 4. og 5. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar sem væru að sækja um nám við Tónlistarskólann í fyrsta sinn. Um er að ræða samfellt nám allt skólaárið en hljóðfæratímar verða styttri en venja er og skólagjöldin því töluvert lægri.

Auk þess sem nemendur læri á spila á blásturs- eða strengjahljóðfærið sem þeir velja sér, þá er markmiðið að þeir myndi lúðrasveit/strengjasveit sem allra fyrst og kynnist því hversu frábært það er að spila í tónlistarhópi.

Skólaárið sem nú er að hefjast, 2024-2025, er þriðja árið sem Tónlistarskólinn býður upp á sérstaka Söngleikjadeild. Það er deild sem hefur það að markmiði að þjálfa nemendur í leiklist, söng, túlkun og hreyfingum á söngleikjasviði. Námið hentar öllum sem hafa áhuga á söngleikjum og sviðslistum eins og áður segir og er mjög gagnlegt fyrir nemendur sem stefna á að taka þátt í söngleikjum eða nemendur sem hyggjast fara í leiklistarnám eðasöngleikjanám hérlendis eða erlendis. Deildin er  tveggja ára nám og ætluð nemendum í 9. og 10. bekk í grunnskólum Reykjanesbæjar og nemendum í framhaldsskóla sem eru með lögheimili í Reykjanesbæ.

Nemendur fá söngkennslu einu sinni í viku og hóptíma einu sinni í viku en í þeim tíma er farið í sviðsframkomu og  nemendum gefst tækifæri til að syngja saman í smærri eða stærri hóp þau lög sem verið er að vinna með hverju sinni. Nemendur fá svo undirleikstíma einu sinni í viku.

Á seinna námsárinu bætist við sérstakur nótnalesturstími einu sinni í viku. Ef nemendur vilja halda áfram námi eftir að söngleikjadeild lýkur, flytjast þeir sjálfkrafa yfir í almenna söngdeild.

Nánari upplýsingar eru á vefsíðu Tónlistarskólans tonlistarskoli.reykjanesbaer.is eða á skrifstofu skólans í síma 420-1400. Skrifstofan er opin virka daga frá kl. 9 -17 nema á föstudögum, en þá er hún opin frá 9-16.

Ennþá eru örfá pláss laus svo nú fer hver að verða síðastur að skrá sig í hvort sem værilúðrasveitarnámið eða strengjasveitarnámið (3., 4. og 5. bekkur) eða söngleikjadeildina (9. og 10. bekkur og framhaldsskólaaldur).