Rytmíska deild Tónlistarskóla Reykjanesbæjar stendur fyrir tónleikum í Frumleikhúsinu við
Vesturbraut föstudaginn 10. febrúar kl.20.00.
Á tónleikunum koma fram tvær hljómsveitir innan rytmísku deildarinnar, sem leika rokk-, popp- og blústónlist og svo Léttsveit Tónlistarskólans. Stjórnendur á tónleikunum eru Eyþór Ingi Kolbeins og Karen Janine Sturlaugsson.
Léttsveit Tónlistarskóla Reykjanesbæjar hefur þegið boð um að halda þrenna tónleika á næstu ISME ráðstefnu, sem haldin verður í borginni Þessaloniki á Grikklandi, dagana 15. – 20. júlí n.k. ISME, eða International Society of Music Education, eru ein elstu og virtustu alþjóðasamtök um tónlistarmenntun og tónlistarkennslu í heimi. Samtökin, sem voru stofnuð árið 1953 af UNESCO, standa reglulega fyrir menntaráðstefnum og eru þær ávallt fjölsóttar af tónlistarkennurum, skólastjórum og öðrum sem vinna að eða tengjast menntamálum í tónlist á einhvern hátt. Fáir íslenskir tónlistarskólar eða skólahópar hafa í gegn um tíðina fengið boð um tónleikahald á ISME ráðstefnu og þetta boð er því afar mikill heiður fyrir Tónlistarskólann og bæjarfélagið okkar.
Efnisskrá tónleikanna í Frumleikhúsinu á föstudaginn, verður afar fjölbreytt og spennandi.
Aðgangur er ókeypis og öllum heimill.